Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins að skipta um þingflokksformann.

Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn fulltrúaráðsins sem send var fjölmiðlum fyrir stundum. Eins og vb.is greindi frá fyrir stundum var Ragnheiður Elín Árnadóttir sett af sem þingflokksformaður að tillögu Bjarna Benediktssonar á þingflokksfundi í morgun. Illugi Gunnarsson var kjörinn formaður þingflokksins í hennar stað.

„Ragnheiður Elín hefur verið einn öflugasti liðsmaður þingflokksins á þessu kjörtímabili og staðið vaktina sem þingflokksformaður þannig að eftir því er tekið,“ segir í ályktun fulltrúarráðsins í Reykjanesbæ.

„Er það ekki síst því að þakka að Suðurkjördæmið er eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins, þar sem Ragnheiður er oddviti. Stjórn Fulltrúaráðsins telur þessa ákvörðun formannsins vera þess eðlis að veikja þingflokk Sjálfstæðisflokksins nú þegar kosningar nálgast . Stjórnin skorar á forystu flokksins að sjá að sér í þessu máli og vinna heldur að því að sameina flokkinn en ekki sundra.“