Landssamband veiðifélaga hefur gert alvarlegar athugasemdir við áform Akvafuture um 20.000 tonna fiskeldi í Eyjafirði í lokuðum kvíum. Landssambandið telur ótímabært með öllu að ráðast í umrædda framkvæmd.

Ljóst er af matsáætlun að eldiskvíar fyrirtækisins hafa verið notaðar í skamman tíma í Noregi og lítil reynsla komin á hversu fiskheldar þær eru segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Sá búnaður sem stendur til að nota hefur ekki verið prófaður við íslenskar aðstæður. Tilgreindur búnaður er aðeins gefinn upp fyrir ölduhæð að 2 metrum og telur Landssambandið að slíkan búnað verði að meta mjög ótraustan við íslenskar aðstæður.

Það er óforsvaranlegt með öllu að ráðast í stórfellt sjóeldi á allt að 10 milljónum laxa í svo veikburða búnaði, sem engin reynsla er komin á við íslenskar aðstæður, í námunda við helstu laxveiðiár á Norður- og Austurlandi.

Vilja að búnaðurinn sé vottaður innanlands

Landssambandið telur að í ljósi þess að engin reynsla er á notkun þessa kerfis í sjókvíaeldi við Ísland, verði að meta hættu á slysasleppingum frá eldinu með sama hætti og um hefðbundnar sjókvíar sé að ræða. Landssambandið leggst, samkvæmt framansögðu, eindregið gegn fyrirhugaðri framkvæmd Akvafuture ehf. eins og hún liggur fyrir. L

andssamband veiðifélaga setur fram ófrávíkjanlega kröfu um að sá búnaður sem fyrirtækið hyggst nota til eldisins verði þaulprófaður við íslenskar aðstæður og vottaður traustur af innlendum aðilum. Niðurstöður þeirra rannsókna verði síðan forsendur ákvörðunar um  hvort taka megi búnaðinn til stórfelldrar framleiðslu á frjóum laxi í sjó við Ísland.