Bæjarstjórn Akureyrar hefur skorað á borgarfulltrúa Reykjavíkur að veita ekki framkvæmdaleyfi á Hlíðarendasvæðinu að svo komnu.

„Bæjarstjórn Akureyrar minnir enn og aftur á mikilvægi innanlandsflugs og að aðgengi landsbyggðanna að höfuðborginni er lykilatriði fyrir farsæla byggðaþróun,“ segir í bókun sem samþykkt var með ellefu samhljóða atkvæðum á fundi bæjarstjórnar.

„Mikilvægt er að sem víðtækust samstaða allra landsmanna náist um framtíðarfyrirkomulag flugvallar á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórn Akureyrar krefst þess að nefnd sem kennd er við Rögnu Árnadóttur, Rögnunefndin, fái svigrúm og þann tíma sem hún þarf til þess að leggja fram sínar tillögur og skorar á borgarfulltrúa Reykjavíkur að beita sér fyrir því að ekki verði afgreidd framkvæmdaleyfi á Hlíðarendasvæðinu fyrr en Rögnunefndin hefur lokið vinnu sinni.“