Rútufyrirtækið Gray Line hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fyrirhugaðri gjaldtöku Isavia á fjarstæðum fyrir hópferðabifreiðar við flugstöð Leifs Eiríkssonar er mótmælt. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun þá mun á næstkomandi mánudag taka gildi ný verðskrá fyrir notkun á ytri hópbifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll.

Gray Line segir að nýja gjaldskráin brjóti gegn samkeppnislögum með sama hætti og fyrri gjaldskráin, en yfirlýsingu Gray Line má lesa í heild sinni hér að neðan.

Yfirlýsing frá Gray Line vegna nýrrar gjaldskrár Isavia fyrir hópferðabíla á fjarstæðum við flugstöð Leifs Eiríkssonar

Þessi nýja gjaldskrá brýtur gegn samkeppnislögum með sama hætti og fyrri gjaldskráin. Um er að ræða 1.500% ofurálagningu á þann kostnað sem Isavia hefur af fjarstæðunum miðað við útreikninga Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið hefur bent Isavia á að haga gjaldskrá sinni þannig að hún standist kostnaðarlegar forsendur. Ljóst er að 1.500% álagning gengur þvert gegn þessum fyrirmælum.

Samkeppniseftirlitið stöðvaði okurinnheimtu Isavia í fyrra skiptið og Gray Line gerir fastlega ráð fyrir að svo verði einnig um þetta óskammfeilna útspil einokunarfyrirtækisins. Nýja gjaldskráin er aðeins lítilsháttar lægri en sú gjaldskrá sem Samkeppniseftirlitið bannaði innheimtu á til loka ársins.

Isavia segir að gjaldtökunni sé ætlað að verja samkeppnislega hagsmuni og gæta jafnræðis milli samgöngumáta í farþegaflutningum til og frá flugstöðinni. Þessi fullyrðing stenst enga skoðun, því Isavia innheimtir mun lægri gjöld af einkabílum, bíleigubílum og leigubílum en hópferðabílum.

Ráðlegast að hætta gjaldtöku af rútustæðum

Isavia segir í tilkynningu að það raski samkeppni að taka ekki gjald á fjarstæðum fyrir hópferðabíla. Hópferðafyrirtækin tvö sem gerðu tilboð í aðstöðu við flugstöðina og inni í henni greiða hvort um sig 450 þúsund krónur á mánuði fyrir sjálf bílastæðin, eða samtals 11 milljónir króna á ári. Isavia gæti höggvið á hnútinn með því að hætta þessari gjaldtöku og um leið allri innheimtu af bílastæðum fyrir hópferðabíla við flugstöðina. Þá væri ójafnræðið úr sögunni og Isavia sýndi um leið verðugan stuðning við þennan hagkvæma og umhverfisvæna ferðamáta.