Neytendasamtökin mótmæla hækkun álagningar á eldsneyti, en þau segja að áætla megi að álagning olíufélaga á bensín sé um þremur krónum hærri á lítrann í október og nóvember en hún var fyrstu níu mánuði ársins.

"Heimsmarkaðsverð á olíu hefur farið hríðlækkandi að undanförnu. Vissulega hefur þetta ekki farið fram hjá neytendum enda hefur bensín, svo dæmi sé tekið, lækkað um rétt rúmar 30 krónur pr. lítra frá því um miðjan júlímánuð. Fram hefur komið í fjölmiðlum að olíufélögin hafa nýtt sér verðlækkanir á heimsmarkaði til að auka álagningu sína í krónum talið," segir í frétt Neytendasamtakanna.

Neytendasamtökin segja ekki eðlilegt að olíufélög notfæri sér lækkun á heimsmarkaðsverði til að "lauma inn hækkun álagningar og hvetja því olíufélögin til að draga þessa hækkun til baka." Það sama eigi við um díselolíu og með sömu rökum megi kalla eftir fjögurra króna verðlækkun þar, að mati samtakanna.