Bandalag háskólamanna (BHM) hefur sent frá sér athugasemdir vegna frumvarps sem nú liggur fyrir Alþingi um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands.

Athugasemdir BHM snúa að tvennu; annars vegar að almennum heimildum ráðherra til að ákveða aðsetur stofnana sem undir hann heyra og hins vegar útvíkkun heimildar til að flytja starfsmenn milli ráðuneyta og stofnana.

BHM segir ekki rétt að endurvekja umrædda heimild en núgildandi lög um Stjórnarráð Íslands voru samin af helstu sérfræðingum á sviði stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar. Það sé því engin tilviljun að almenna heimildin var felld brott úr lögum. Einnig segir BHM að valdið til að ákveða staðsetningu og flutning ríkisstofnunar eigi að vera hjá Alþingi, þar sem það komi í veg fyrir geðþóttaákvarðanir ráðherra.

Að lokum telur BHM frumvarpið ganga gegn reglum um skyldu stjórnvalda til að auglýsa stöður til umsóknar. Sú meginregla byggi annars vegar á jafnræðissjónarmiðum um að veita beri öllum þeim sem hafi áhuga tækifæri til að sækja um opinbera stöðu og að hæfasti umsækjandi sé valinn.