Tíu mótmælendur sem voru handteknir í Gálgahrauni 21. október 2013 hafa höfðað skaðabátamál gegn ríkinu vegna ólögmætra handtakna, frelsissviptinga og vistuna í fangaklefum. Hver mótmælandi fer fram á skaðabætur sem nema tveimur milljónum króna. Níumeningarnar úr Gálgahrauni koma ekki að málinu. Þessu greinir Vísir frá.

Fram kemur í stefnu Ómars Ragnarssonar að hann hafi komið gangandi með öðrum manni að hrauninu 21. október 2013. Framkvæmdir höfðu þá hafist um morguninn við umdeilda lagningu Álftanesvegar í gegnum Gálgahraun, en á þeim tíma var ekki fengin niðurstaða í ágreiningsmál sem voru til meðferðar fyrir dómstólum um lögmæti vegagerðarinnar.

Hópur fólks var þar að mótmæla vegagerðinni og settist Ómar niður með þeim. Þá mun lögreglan hafa komið skömmu seinna og skipað þeim að færa sig út fyrir svæði sem þá var sagt vera vinnusvæði. Því næst hófu lögregluþjónar að bera mótmælendur út fyrir svæðið. Ómar segir í stefnunni að hann hafi ekki veitt mótspyrnu.

Ómar var handtekinn og færður ásamt fleira fólki á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Hann var vistaður í fangaklefa ásamt fleirum og látin laus skömmu síðar. Honum varð boðin sektargerð að upphæð tíu þúsund krónur. Ómari var gefið að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu og ástæða handtöku samkvæmt lögregluskýrslu hafi einnig verið að koma í veg fyrir áframhaldandi brot.

Í stefnunni segir að megi sjá að aðgerðirnar hafi verið skipulagðar á föstudeginum 18. október. Handtökuskýrslur og sektargerðir hafi því verið undirbúnar fyrirfram. Einnig segir að aðgerðir og valdbeiting lögreglu hafi verið úr hófi og ekki í samræmi við tilefnið. Um fimmtíu til sextíu lögreglumenn hafi verið í Gálgahrauni, mun fleiri en mótmælendurnir. Auk þess voru lögregluþjónarnir vopnaðir gasbrúsum, kylfum og handjárnum. Brotavettvangurinn var samkvæmt stefnunni útbúinn af lögreglu samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun til þess að reyna að búa til eitthvert handtökutilefni þegar það hafi ekki verið fyrir hendi.