Motormax ehf. hefur fest kaup á þrotabúi Bílanausts ehf. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Motormax mun því fljótlega hefja rekstur Bílanausts á ný eftir að endurskipulagi rekstrar fyrirtækisins er lokið og gengið hefur verið frá ráðningu starfsfólks.

Nýir eigendur vilja tryggja að Bílanaust geti áfram boðið breitt úrval af varahlutum og rekstrarvörum fyrir bíla og veitt viðskiptavinum góða þjónustu.

Áformað er að reka verslanir Bílanausts í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Selfossi áfram og stefnt er að opnun verslananna á Akureyri og Egilsstöðum síðar.