MP banka verður skipt í tvennt og núverandi hluthafar bankans fara að mestu út úr eigendahópi hans.

Erlendar fjárfestingarbankaeignir MP banka verða settar inn í nýtt fjárfestingafélag sem Margeir Pétursson, sem MP banki er kenndur við, og helstu viðskiptafélagar hans munu eiga og stjórna. Margeir á í dag 28% hlut í MP banka og bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir eiga samtals 25,4% hlut.

Í MP banka verða eftir innlendar eignir og á bankinn að einbeita sér fyrst og fremst að viðskiptabankastarfsemi.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .