Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist viðskiptavakt með ISLA CBI 20, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered Bonds) Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Í viðskiptavaktinni felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20 m.kr. að nafnverði. MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 0,8%. Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60 m.kr. að nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með mánudeginum 23. júní 2014.