MP Banki
MP Banki
© BIG (VB MYND/BIG)
MP banki ætlar að birta helstu niðurstöður hálfsársuppgjörs síns í október. Bankinn hyggst ekki birta reikninginn opinberlega, en honum ber ekki lagaleg skylda til þess. Viðskiptavinir eiga þó að hafa aðgang að árshlutareikningnum í höfuðstöðvum bankans.

Eigendabreytingar urðu á MP fyrr á þessu ári þegar fjárfestahópur leiddur af Skúla Mogensen eignaðist viðskiptastarfsemi MP banka. Töluverðar mannabreytingar hafa orðið innan bankans síðan og tók Sigurður Atli Jónsson við starfi forstjóra í sumar.