Á hluthafafundi MP Fjárfestingarbanka hf. 14. desember síðastliðinn var samþykkt tillaga um að auka eigið fé bankans um 700 milljónir króna í lokuðu forgangsréttarútboði. Hluthafar í bankanum eru 47 og tóku þeir allir þátt í hlutafjáraukningunni sem var greidd í lok desember segir í tilkynningu tilKauphallarinnar.

Í dag er útgefið hlutafé bankans einn milljarður króna og eigið fé 3,2 milljarðar.

Í tilkynningunni kemur fram að hlutafjáraukningin mun styðja við frekari vöxt og uppbyggingu MP Fjárfestingarbanka hér á landi og erlendis. Nýlega keypti bankinn, auk fleiri íslenskra fjárfesta, Bank Lviv bankann í Úkraínu. Þá hefur MP Fjárfestingarbanki aukið hlutdeild sína í Sparisjóði vélstjóra og á nú tæplega 10% af útgefnu stofnfé sparisjóðsins.

MP Fjárfestingarbanki hf. er framsækin fjármálastofnun sem hefur starfsleyfi til rekstrar lánafyrirtækis og er aðili að Kauphöll Íslands. Hjá bankanum starfar hópur sérfræðinga með víðtæka menntun og reynslu. Bankinn rekur starfsstöðvar í þremur löndum utan Íslands í gegnum tengd félög. Alls vinna um 30 manns hjá bankanum og tengdum félögum.