MP fjárfestingarbanki hafði mestu arðsemi eigin fjár allra fjármálafyrirtækja árið 2004 eða 106,3%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Fjármálaeftirlitsins um fjármálafyrirtæki, sem gefin er út árlega. Af viðskiptabönkunum hafði Landsbankinn mestu arðsemi eigin fjár eða 53,3%. Næstur kemur Íslandsbanki með 33,5%, Sparisjóðabankinn með 33,2% og þá Kaupþing banki með 17,4%.

Meðalarðsemi viðskiptabankanna fjögurra var 26,9%. Í skýrslunni er arðsemin sýnd sem hagnaður ársins 2004 í hlutfalli af meðalstöðu eigin fjár í ársbyrjun og árslok að frátöldum hagnaði ársins.

Af sparisjóðunum var Sparisjóður Strandamanna með mestu arðsemi eigin fjár eða 53,6%. Næstur kemur Sparisjóður Svarfdæla með 41,8%, þá Sparisjóður Siglufjarðar með 34,5% og SRON með 32,3%. Einn sparisjóður hafði neikvæða arðsemi eigin fjár; Sparisjóður Skagafjarðar með -17,4%.

Meðalarðsemi sparisjóðanna tuttugu og þriggja var 18,9%.

Sjá nánar í Viðskiptablaðinu í dag.