MP banki seldi í dag milljón hluti í Fjarskiptum, rekstrarfélagi Vodafone, að því er fram kemur í flöggun til Kauphallarinnar. Miðað við skráð gengi nemur markaðsverð hlutarins sem seldur var í dag um 26 milljónum króna. Bankinn hefur selt 6,3 milljónir hluta eða fyrir rúmar 156 milljónir króna. MP banki fer nú með 4,7% hlut í Vodafone.