Í gær afhenti Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, forsvarsmönnum Landspítalans nýtt CUSA tæki sem safnað var fyrir síðasta haust í átakinu Mjólkin gefur styrk. D-vítamínbætt léttmjólk skipti þá tímabundið um útlit og runnu 30 krónur af hverri seldri fernu til tækjakaupa Landspítala. Alls söfnuðust um 15 milljónir króna segir í fréttatilkynningu.

Tækið, sem í daglegu tali er kallað Kusa, er annað af tveimur tækjum sem keypt voru fyrir söfnunarféð. CUSA er nánar tiltekið skammstöfun á Cavitron Ultrasonic Surgical Aspirator og er einkum notað við aðgerðir á lifur.

Að sögn Ölmu Möller, framkvæmdastjóra aðgerðarsviðs og starfandi forstjóra Landspítala, fer slíkum aðgerðum fjölgandi ekki síst vegna þess að nú eru gerðar aðgerðir vegna meinvarpa frá ristilkrabbameini sem minna  var gert af áður.

Nýja tækið leysir af hólmi 20 ára gamalt tæki og gerir skurðlæknum jafnframt kleift að gera slíkar aðgerðir um kviðsjá. Inngrip um kviðsjá er minna álag fyrir sjúklinginn sem þarf þá styttri sjúkrahúslegu en ella. Þá voru enn fremur fest kaup á barkaspeglunartæki fyrir bráðamóttöku sem auðveldar barkaþræðingu hjá mikið slösuðum og veikum sjúklingum.

„Það er okkur sönn ánægja að geta lagt Landspítala lið fjórða árið í röð og vonum við að Kusan efli enn frekar það frábæra starf sem unnið er á spítalanum,“ sagði forstjóri Mjólkursamsölunnar við afhendingu tækjanna.

Söfnunarátakið Mjólkin gefur styrk hefur á undanförnum fjórum árum veitt Landspítala styrki til tækjakaupa að verðmæti 60 milljónir króna.