Rekstrarhagnaður Magasin du Nord rekstrarárið 2007-2008, sem lauk 28. febrúar,  fyrir einskiptiskostnað, óreglulega liði og afskriftir nam 45 milljónum danskra króna, jafngildi tæplega 800 milljónum íslenskra króna miðað við gengi íslensku krónunnar nú.

Þetta er mun betri niðurstaða en rekstrárið 2006-2007 en þá var rekstrartap upp á 42 milljónir danskra  króna þannig að rekstrarafkoman hefur batnað sem nemur um 1,5 milljarði íslenskra króna.

Rekstrahagnaður fyrir afskriftir og skatta nam 16 milljónum danskra króna á móti um 86 milljóna króna tapi rekstraárið 2006-2007.

Rekstrarniðurstaðan fyrir skatta var tap upp á 5 milljónir danskra króna en sambærilega tala fyrir fyrra rekstrarár var 79 milljóna danskra króna tap.