Lýsi hf. hagnaðist um 330,5 milljónir króna á síðasta ári, en árið 2011 nam hagnaður fyrirtækisins 47,9 milljónum króna. Velta Lýsis jókst um 1,4 milljarða króna milli ára og nam 7,3 milljörðum króna í fyrra.

Kostnaður jókst um rúmar 800 milljónir króna milli ára og hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta og afskriftir jókst því úr 500,7 milljónum í 1.062,9 milljónir. Eignir Lýsis jukust um tæpan milljarð milli ára og skuldirnar sömuleiðis, en eigið fé jókst einnig töluvert milli ára og nam 385,2 milljónum króna í árslok samanborið við 54,7 milljónir ári fyrr.

Katrín Pétursdóttir er framkvæmdastjóri Lýsis.