Gistinætur á hótelum landsins voru 161.300 í maí og fjölgaði um 16% frá maí í fyrra. Gistinóttum á hótelum hefur því fjölgað um 22% á milli ára á fyrstu fimm mánuðum ársins. Fram kemur á vef Hagstofunnar að gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum. Það er 21% fjölgun frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 14% milli ára í maí.

Gistinóttum á hótelum á fyrstu fimm mánuðum ársins voru 693.400 en 569.500 á sama tíma í fyrra. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 24% miðað við sama tíma í fyrra en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 13%.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að á höfuðborgarsvæðinu voru gistinæturnar 110.000 á hótelum í maí sem er aukning um 8% frá sama mánuði í fyrra. Utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði gistinóttum umtalsvert á milli ára. Á Suðurnesjum voru 8.000 gistinætur í maí en 4.800 í maí í fyrra. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 5.000 í 8.100 og á Norðurlandi fjölgaði þeim um 48%. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 6.500 gistinætur í maí sem er um 30% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði um 7% en þar voru gistinætur um 15.200 nú en 14.100 í maí í fyrra.