Halli á vöruviðskiptum í maí nam 2,6 milljörðum króna, að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Útflutningur í maí nam 63,2 milljörðum króna á meðan vörur fyrir 65,8 miiljarða króna voru fluttar inn í mánuðinum. Þetta er mun minni halli en í sama mánuði fyrir ári síðan þegar vöruviðskipti voru óhagstæð um 16,9 milljarða króna á gengi hvors árs. Þegar viðskipti með flugvélag og skip eru undanskilin var hallinn 900 milljónir króna í maí miðað við 14,5 milljarða króna í maí 2018.

Á tímabilinu janúar til maí 2019 voru fluttar út vörur fyrir 287,4 milljarða króna en inn fyrir 305,4 milljarða. Halli á vöruskiptum við útlönd nam því 18,0 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 63,8 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn frá janúar til maí var því 45,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn hins vegar 37,9 milljörðum króna á tímabilinu janúar til maí 2019, en 49,1 milljarði króna fyrir sama tímabil 2018.

Á fyrstu fimm mánuðum ársins 2019 var verðmæti vöruútflutnings 50,6 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 21,4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 46,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,1% hærra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,2% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 16,4% hærra en á sama tíma árið áður. Verðmæti útflutnings skipa og flugvéla var tæpir 23,0 milljarðar króna á fyrstu fimm mánuðum ársins.

Á fyrstu fimm mánuðum ársins 2019 var verðmæti vöruinnflutnings 4,9 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 1,6% á gengi hvors árs. Innflutningur jókst mest á unnum hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingarvörum. Á móti kom minni innflutningur á flutningatækjum.