Owen O’Brian hefur gengið til liðs við CCP. Hann mun starfa á skrifstofu fyrirtækisins í Newcastle og stýra framleiðslu og þróun nýs leiks fyrirtækisins EVE: Valkyrie.

EVE: Valkyrie, sem kemur út á næsta ár, var kynntur til leiks á Gamescom ráðstefnunni í Þýskalandi í síðasta mánuði. Leikurinn byggir á nýrri tækni á sviði sýndarveruleika (e. virtual reality) þar sem spilurum er gefinn kostur á að gerast flugmenn í geimskipum í EVE heiminum. Leikurinn er hraður og óvæginn þar sem spilarar eigast við í skotbardögum. Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE: Valkyrie byggir á gerir upplifunina einstaklega raunverulega og þannig úr garði gerða að það er engu líkara en spilari leiksins sé kominn í flugstjórasæti geimskipsins, þar sem hann mætir óvinum sínum og hættum.

Með EVE: Valkyrie er tilraunaverkefni CCP, EVE-VR , gefið framhaldslíf. Fyrsta útgáfa tilraunarinnar lét dagsins ljós á EVE Fanfest hátíðinni í Reykjavík í maí síðastliðnum þar sem hún vakti verðskuldaða athygli. Í kjölfarið ákvað CCP að þróa hugmyndina áfram og gera nýja útgáfu af EVE-VR til að prufa á stærstu leikjaráðstefnu heims, E3 ráðstefnunni í Los Angeles,  sem fram fór í júní.