Sláturfélag KVH á Hvammstanga hefur fengið leyfi frá Matvælastofnun til að slátra kanínum. Reiknað er með að slík slátrun hefjist strax á næsta ári, að því er fram kom í hádegisfréttum RÚV.

Rætt var við kanínubónda sem reiknar með því að slátra 1500 kanínum á næsta ári. Þegar frammí sæki verði 5000 kanínum slátrað á ári. Töluverð eftirspurn mun vera eftir kanínukjöti.