Múrbúðin ehf. skilaði 58,2 milljóna króna hagnaði á síðasta ári í samanburði við 61,6 milljóna króna hagnað árið 2017. Rekstur félagsins var með svipuðu móti í fyrra og árið á undan en heildarvelta félagsins nam 939 milljónum króna og lækkaði um 2% frá fyrra ári.

Samtals námu sölutekjur tæpum 938 milljónum króna en voru 959 milljónir króna árið 2017. Kostnaðarverð seldra vara lækkaði á milli ára úr 548 milljónum króna niður í 513 milljónir króna. Rekstrarhagnaður var 84 milljónir króna miðað við 93 milljónir króna árið á undan.

Eigið fé var í árslok 188 milljónir króna samanborið við 130 milljónir króna í lok árs 2017. Skuldir lækkuðu á sama tímabili úr 154 milljónum í 136 milljónir króna. Múrbúðin er í eigu MBKF ehf.  en félagið rekur verslanir að Kletthálsi í Reykjavík og Fuglavík í Reykjanesi.