Stjórnendur bresku þingmannanefndarinnar sem skoðar hlerunarmálin sem tengjast News Corp. segja líklegt að þeir kalli stjórnendur News Corps. aftur fyrir nefndina. Þar á meðal James Murdoch en nýjar upplýsingar í málinu benda til að hann hafi ekki sagt satt þegar hann kom fyrir nefndina þann 19. júlí síðastliðinn.