Robert Murdoch, stjórnarformaður News Corp., segist ekki munu reyna að hindra yfirtöku Microsoft á Yahoo. Þessi tíðindi þrengja stöðu Yahoo, sem hefur reynt að verjast yfirtökunni. Bloomberg segir frá þessu í dag.

Við ætlum okkur ekki að taka slaginn við Microsoft, okkar fjárhagslegi styrkur jafnast ekki á þeirra, “ sagði Murdoch í dag á ráðstefnu á vegum Bear Sterns.

Yahoo hafnaði 44.6 milljarða dollara yfirtökutilboði Microsoft fyrir mánuði síðan við misgóðar undirtektir hluthafa. Fyrirtækið átti í viðræðum við News Corp um sameiginlegar aðgerðir til að koma í veg fyrir yfirtökuna.