Elon Musk, forstjóri Tesla og eigandi The Boring Company, hefur boðið taílenskum stjórnvöldum aðstoð sína við að hjálpa til við björgunarðagerðir þar í landi. Þetta kemur fram á vef BBC .

Taílensk stjórnvöld vinna dag og nótt við að koma tólf fótbolta drengjum og þjálfara þeirra út úr helli, en drengirnir og þjálfarinn festust í hellinum vegna mikilla flóða í kringum hellinn. Samtals hafa drengirnir og þjálfarinn sitið fastir í hellinum í tæpar tvær vikur.

Musk telur að fyrirtækið hans The Boring Company geti hjálpað til við björgunaraðgerðir. Hann segir að fyrirtækið sé „gott í að grafa holur” og viðraði einnig hugmyndir um að leggja göng úr nylon inn í hellinn og blása þau upp „ eins og hoppukastala“ til að búa til göng undir vatnið.

Að sögn talsmanns The Boring Company er fyrirtækið í viðræðum við taílensk stjórnvöld um það hvernig aðkoma fyrirtækisins að hjálparstarfi gæti orðið.