Elon Musk, stofnandi og forstjóri Tesla, varð sjöundi ríkasti aðili heims í gær þegar hann tók fram úr fjárfestinum Warren Buffett. Ástæðuna má rekja til mikillar hækkunar hlutabréfa Tesla en þau náðu hæst tæpum 1.800 dollurum hvert í viðskiptum gærdagsins, en gáfu svo eftir og enduðu daginn í um 1.500 dollurum. Að auki gaf Buffett um þrjá milljarða dollara í góðgerðamál nú á dögunum. Bréf Tesla brutu 1.000 dollara múrinn 10. júní síðastliðinn.

Samkvæmt útreikningum Bloomberg eru auðæfi Musk nú metin á um 70,5 milljarða dollara eða um milljarði meira en auðæfi Buffett. Frá þessu greinir CNBC.

Efst á lista Bloomberg situr Jeff Bezos, stofnandi Amazon, sem er metinn á um 189 milljarða dollara. Auður hans hefur aukist um 74,5 milljarða það sem af er ári en hlutabréf Amazon hafa hækkað um 73% á þessu ári.

Næst efst er Bill Gates, stofnandi Microsoft, en auður hans er metinn á 116 milljarða dollara og í þriðja sæti situr Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook en auður hans er metinn á 93 milljarða.

Markaðsvirði Tesla er nú um 275 milljarðar dollurum, en það náði hæst um 330 milljörðum dollara í gær, og var þá 10. stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna en það var stofnað árið 2003.