Samtök atvinnulífsins héldu á mánudag ársfund sinn undir yfirskriftinni Framfarir í hundrað ár, sem er vísun í aldarafmæli fullveldisins.

Á fundinum sem haldinn var Hörpu héldu þau Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður samtakanna, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tölu, en auk þess ávarpaði dr. Eamonn Butler framkvæmdastjóri Adam Smith stofunarinnar í London fundinn.

Halldór Benjamín Þorbergsson stýrði fundinum en þar var boðið upp á svokallað tímaflakk um söguna, þar sem fjallað var um það sem hefur áunnist á hundrað árum og framtíðina.

Þáttakendur í tímaflakkinu voru þau Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, Orri Hauksson, forstjóri Símaans, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Anna Svava Knútsdóttir, eigandi ísbúðarinnar Valdís ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræðingi.

Ársfundur SA 2018: Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA og Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA
Ársfundur SA 2018: Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA og Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA og fundarstjóri á ársfundi samtakanna, og Eyjólfur Árni Rafnsson,
formaður samtakanna, takast í hendur.

Eyjólfur Árni Rafnsson
Eyjólfur Árni Rafnsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Eyjólfur Árni Rafnsson var á ársfundinum endurkjörinn formaður með 97% greiddra atkvæða.

Góður hópur var mættur á ársfund SA, og enn fleiri fylgdust með fundinum í beinni útsendingu á vefnum, en á heimasíðu samtakanna er mögulegt að horfa á upptöku af fundinum.
Góður hópur var mættur á ársfund SA, og enn fleiri fylgdust með fundinum í beinni útsendingu á vefnum, en á heimasíðu samtakanna er mögulegt að horfa á upptöku af fundinum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vel var mætt á ársfundinn og enn fleiri fylgdust með fundinum í beinni útsendingu á vefnum, en á heimasíðu samtakanna er mögulegt að horfa á upptöku af fundinum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund atvinnulífsins, ræddi stóru málin og áskoranir sem blasa við á vinnumarkaðnum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund atvinnulífsins, ræddi stóru málin og áskoranir sem blasa við á vinnumarkaðnum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund atvinnulífsins, ræddi stóru málin og áskoranir sem blasa við á
vinnumarkaðnum.

Stefán Pálsson sagnfræðingur og Halldór Benjamín Þorbergsson stýrðu tímaflakki um söguna frá fullveldisárinu 1918.
Stefán Pálsson sagnfræðingur og Halldór Benjamín Þorbergsson stýrðu tímaflakki um söguna frá fullveldisárinu 1918.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Stefán Pálsson sagnfræðingur og Halldór Benjamín Þorbergsson stýrðu tímaflakki þar sem hópur stjórnenda fór í skemmtilegt ferðalag um söguna, það sem hefur áunnist frá því að íslenska þjóðin varð fullvalda, sem og framtíðina.

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda fjallaði um framþróun í sjávarútvegi síðustu hundrað árin.
Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda fjallaði um framþróun í sjávarútvegi síðustu hundrað árin.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda fjallaði um framþróun í sjávarútvegi síðustu hundrað árin, umfangsmiklar fjárfestingar í greininni nýverið en ekki síst árin sín og forvera sinna á sjónum. Vistin um borð í Röðli var honum eftirminnileg og sagði hann aðstæður sjómanna í dag gjörbreyttar til hins betra.

Orri Hauksson, forstjóri Símans, mætti á svið með farsíma Ómars Ragnarssonar sem var framleiddur árið 1987.
Orri Hauksson, forstjóri Símans, mætti á svið með farsíma Ómars Ragnarssonar sem var framleiddur árið 1987.

Orri Hauksson, forstjóri Símans, mætti á svið með farsíma Ómars Ragnarssonar sem var framleiddur árið 1987. Níðþungur síminn þótti framúrstefnulegur á sínum tíma en snjallsímar í dag eru margfalt öflugri. Það þyrfti milljón síma á borð við gamla síma Ómars til að geyma svipað gagnamagn og snjallsímar nútímans.

Forystumenn ríkisstjórnarinnar fylgdust með umræðum á fundinum.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar fylgdust með umræðum á fundinum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Forystumenn ríkisstjórnarinnar fylgdust með umræðum á fundinum.

Anna Svava Knútsdóttir eigandi ísbúðarinnar Valdísar og grínisti sagði frá ævintýrinu á bak við Valdís.
Anna Svava Knútsdóttir eigandi ísbúðarinnar Valdísar og grínisti sagði frá ævintýrinu á bak við Valdís.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Anna Svava Knútsdóttir eigandi ísbúðarinnar Valdísar og grínisti sagði frá ævintýrinu á bak við Valdís, fimm ára afmælinu og nýju búðinni sem opnar innan skamms á Frakkastíg.

Skotinn Dr. Eamonn Butler, framkvæmdastjóri Adam Smith stofnunarinnar í London, ræddi mikilvægi frjálsra viðskipta, einkaframtaksins, skatta og hlutverk ríkisins.

Einnig var leikið á létta strengi í Hörpu meðan á ársfundinum stóð.
Einnig var leikið á létta strengi í Hörpu meðan á ársfundinum stóð.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Einnig var leikið á létta strengi í Hörpu meðan á ársfundinum stóð.

Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar var meðal þeirra sem tóku þátt í tímaflakkinu um söguna.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar tók einnig þátt í tímaflakkinu.

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA sagði frá afa sínum og alnafna sem var sjómaður öll stríðsárin.
Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA sagði frá afa sínum og alnafna sem var sjómaður öll stríðsárin.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sagði stutta sögu af afa sínum og alnafna. Hann fæddist árið 1908 og lést langt fyrir aldur fram á 62. aldursári. Halldór Benjamín eldri stundaði sjó frá sextán ára aldri. Sjómennskan var hans ævistarf; hann var bæði háseti og netamaður á togurum í rúma þrjá áratugi, þ. á m. öll stríðsárin. Lengst af á togurum útgerðarfyrirtækisins Alliance, m.a. Baldri og Jóni forseta.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sagði stutta sögu af afa sínum og alnafna sem starfaði á sjó frá 16 ára aldri.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sagði stutta sögu af afa sínum og alnafna sem starfaði á sjó frá 16 ára aldri.
© Aðsend mynd (AÐSEND)