Mótmælandi stökk á Mario Draghi, seðlabankastjóra Evrópu, á blaðamannafundi Seðlabanka Evrópu sem nú stendur yfir. Hægt er að sjá atvikið á meðfylgjandi myndbandi.

Mótmælandinn taldi sig eiga sitthvað vantalað við Draghi, og hrópaði í þann mund sem hann stökk á hann: „Bindum enda á einræði Seðlabanka Evrópu!“ Kastaði hún konfetti-strimlum í átt að seðlabankastjóranum á meðan.

Atvikið átti sér stað í upphafi blaðamannafundarins, en í kjölfarið fór Draghi afsíðis en sneri aftur og hélt fundinum áfram skömmu síðar.

Myndband