Aðalfundur Samtaka verslunar og þjónustu var haldinn í síðustu viku, undir yfirskriftinni: Keyrum framtíðina í gang! Af því tilefni var blásið til ráðstefnu þar sem aðalræðumaðurinn var Greg Williams, aðalritstjóri Wired Magazine.
Greg er virtur sérfræðingur þegar kemur að breytingum í tækni og viðskiptum og hvernig þær hafa áhrif á viðskiptalífið og samfélög okkar í heild.
Í starfi sínu er Greg í samskiptum við frumkvöðla, hugsuði, vísindafólk, athafnafólk og skapandi fólk sem er að breyta heiminum og skrifar um fjölmörg málefni á borð við nýsköpun, tækni, viðskipti, sköpun og hugmyndir.
Hann hefur einstakt lag á að setja flóknar hugmyndir fram á skemmtilegan og aðgengilegan hátt og undirbúa áheyrendur undir það sem koma skal segir í umfjöllun um fundinn.
Að auki hélt Margrét Sanders, fráfarandi formaður SVÞ erindi, auk þeirra Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Köru connect ehf.
Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull og formaður stýrihóps um gerð nýsköpunarstefnu Íslands, stýrði fundinum.
Margrét Sanders, fráfarandi formaður SVÞ ávarpaði aðalfundinn.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru connect ehf. hélt einnig erindi.
Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
Davíð Þorláksson lögfræðingur og forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins ásamt formanni samtakanna, Eyjólfi Árna Rafnssyni.
Magnús Sigurbjörnsson hjá Tjarnargötunni
Helgi Anton Eiríksson, fyrrverandi forstjóri Iceland Seafood
Almar Guðmundsson fyrrverandi framkvæmdastjóri SI og núverandi framkvæmdastjóri Krítar fjármögnunarlausna hjá Gamma Capital Management.
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis.
Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku
Elín Hjálmsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Eimskips
Jón Ólafur Halldórsson forstjóri Olís og nýkjörinn formaður SVÞ ásamt sessunautum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Vinstri grænna
Gréta María Grétarsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar.
Ingvar Freyr Ingvarsson hagfræðingur SVÞ lét sig ekki vanta.
Stefán Þór Helgason ráðgjafi hjá Deloitte og fyrrum verkefnastjóri hjá Klak Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetri en þar var hann meðal annars verkefnastjóri Gulleggins, Startup Energy Reykjavík, Startup Reykjavík, ClimateLaunchpad, Startup weekend Reykjavík og Snilldarlausna Marel.
Stefán Baxter framkvæmdastjóri og stofnandi Quick Lockup og tæknistjóri og stofnandi Universal Data Sources, var einnig einn stofnanda og áður hugmyndasmiður hjá Activity Stream, eða Flaumi.
Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir.