Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi var haldinn undir yfirskriftinni „Fjárfesting - forsenda framfara“ á Hilton Nordica Reykjavík hótelinu 4. maí síðastliðinn.
Eins og Viðskiptablaðið sagði frá kenndi þar ýmissa grasa, en meðal ræðumanna var Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri Völku. Jens Garðar Helgason formaður samtakanna hélt einnig erindi ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jafnframt voru hvatningarverðlaun sjávarútvegsins afhent, ásamt sérstakri viðurkenningu til Landsbjargar. Auk þess var tilkynnt um styrki úr Rannsóknasjóði síldarútvegsins og loks var hanastél að því loknu eins og segir á heimasíðu félagsins.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS fjallaði um hvernig hámarka megi virði auðlindar í sínum fyrirlestri.
Jens Garðar Helgason, Páll Gunnar Pálsson, Nanna Bára Maríasdóttir, Árni Gunnarsson, Birna Sigrún Hallsdóttir, María Ásdís Stefánsdóttir, Svanhildur Egilsdóttir og Sigurgeir Brynjar Kristleifsson við afhendingu hvatningarverðlauna sjávarútvegsins.
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir starfsmaður Arion banka og fyrrum aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS, ásamt Jens Garðari Helgasyni formanni samtakanna og Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins var meðal gesta.
Jón Svanberg Hjartarson tók við sérstakri viðurkenningu frá SFS fyrir hönd Landsbjargar.
Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir hlutu einnig viðurkenningu.
Arnar Sigurmundsson var meðal áhorfenda en hann er ráðgjafi Samtaka atvinnulífsins í lífeyrismálum og fyrrverandi formaður Landsambands lífeyrissjóða.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ávarpaði ársfundinn.
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi samgönguráðherra, Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins og Sveinn Hjörtur Hjartarson fyrrverandi hagfræðingur LÍU.
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir ávarpaði fundinn.
Kristján Loftsson fyrrverandi stjórnarformaður HB Granda lét sig ekki vanta.
Guðmundur Kristjánsson í Brimi sem keypti þriðjungshlutann í HB Granda af fyrirtækjum að stórum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar var einnig á fundinum.
Anna Guðmundsdóttir fjármálastjóri Gjögurs og stjórnarmaður í SFS hlustaði á erindi ræðumanna.
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair hlustaði á fyrirlestra ársfundarins.
Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri og Erla Ósk Pétursdóttir gæða og þróunarstjóri útgerðarfélagsins Vísis voru meðal gesta í salnum.
Kristján Ragnarsson fyrrverandi formaður hins gamla Landsambands íslenskra útgerðarmanna sem rann inn í SFS.
Eggert Benedikt Guðmundsson fyrrverandi forstjóri N1 og núverandi forstjóri ReMake Electric ehf.
Jens Garðar Helgason formaður samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi ávarpaði hópinn.
Guðrún Hafsteinsdóttir markaðsstjóri Kjörís og formaður Samtaka iðnaðarins.
Sveinn Friðrik Sveinsson fjármálastjóri SFS.
Katrín Atladóttir forritari hjá CCP, borgarstjórnarframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi badminton stjarna.
Kristján Vilhelmsson einn eigenda og framkvæmdastjóri hjá Samherja.
Freyja Önundardóttir útgerðarstjóri Önundar ehf.
Adólf Guðmundsson fyrrverandi formaður LÍÚ og framkvæmdastjóri Gullbergs á Seyðisfirði.
Magnús Kristinsson fyrrverandi framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum.