Mikil gleði var í Norðurturni í Kópavogi þegar Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi bankann inn í Kauphöllina við upphaf viðskipta á þriðjudaginn. Skráningin fór fram að undangengnu stærsta frumútboði Íslandssögunnar, þar sem umframeftirspurnin var níföld og 24 þúsund keyptu hluti í bankanum.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, Birna Einarsdóttir og Magnús Harðarson

© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Birna og Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, en Íslandsbanki er tuttugasta félagið á aðalmarkaði Kauphallarinnar og það þriðja stærsta.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, og Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, lögfræðingur Bankasýslunnar, voru að vonum ánægðir með að bankinn væri kominn á markað, en Bankasýslan heldur áfram utan um þau 65% sem ríkið á í bankanum.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, nýr fálkaorðuhafi og fyrrverandi stjórnarmaður í Íslandsbanka, Friðrik Sophusson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, og Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður, létu sig ekki vanta.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Nokkur fjöldi starfsmanna Íslandsbanka og annarra áhugasamra mætti til að fagna skráningunni.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Rut Gunnarsdóttir, regluvörður Íslandsbanka, og Magnús Fannar Sigurhansson, lögfræðingur hjá bankanum voru á staðnum.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Guðrún Þorgeirsdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka, og Hallgrímur Snorrason, formaður stjórnar bankans.

Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
Íslandsbanki hf. tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka, og Írunn Ketilsdóttir, Kristín Hrönn Guðmundsdóttir og Guðný Sigurðardóttir, starfsmenn bankans, voru viðstaddar athöfnina.