Um 100 manns tóku þátt í golfmóti Nýherja, sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi á dögunum.

Hér til hliðar má sjá myndir af þátttakendum. Smellið á númerið neðst í horninu til að skipta milli mynda.

Mótið á sér langa sögu en það var haldið nú í 10 sinn. Á mótinu er allra stærstu viðskiptavinum fyrirtækisins boðin þátttaka.

Þá var Peter Uelen, aðstoðarforstjóri APC yfir Norðurlöndum, Eystrasaltsríkjunum og Benelux löndunum, gestur á mótinu en Nýherji er meðal annars umboðsaðili fyrir APC varaaflgjafa.

Keppt var í 2. flokkum á mótinu.

Sigurvegari í 1. flokki (24 og lægra í forgjöf) var Jón Ingi Björnsson, Glitni, á 36 punktum.

Í 2. flokki (24+ í forgjöf) var Jens Buch efstur á 39 punktum.

Þá voru veitt fjölmörg verðlaun fyrir ýmis tilþrif í mótinu.