Það var margt um manninn á Viðskiptaþingi sem haldið var á Hilton í síðustu viku.
Daniel Cable var aðalræðumaður þingsins.
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson
Deila
Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands - „Tölvan segir nei“ - var haldið þann 12. febrúar síðastliðinn á Hilton Reykjavík Nordica, en þar var fjallað um hlutverk og umfang hins opinbera, áskoranir og tækifæri sem felast í innleiðingu kerfisbreytinga og leiðir til að skapa breiðari samstöðu um umbætur í opinberum rekstri.
Daniel Cable, prófessor við London Business School, var aðalræðumaður þingsins, en hann hefur rannsakað hvernig hægt sé að ná í gegn breytingum og hvers vegna það reynist oft erfitt. Þá flutti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræðu ásamt fólki í atvinnulífinu, auk þess sem formenn stjórnmálaflokkanna tóku þátt í pallborðsumræðum.
Hér má sjá myndir frá þinginu sem var vel sótt líkt og síðustu ár.