Nýsköpun er leiðin fram á við var yfirskrift Iðnþings 2020 sem fór fram síðastliðinn föstudag. Vegna samkomutakmarkana fór þingið að þessu sinni fram í beinni útsendingu frá Silfurbergi í Hörpu í stað fjölmenns viðburðar.

Á Iðnþingi 2020 var kastljósinu beint að því hvernig áskorunum um fjölgun nýrra starfa verður mætt en á þinginu kom fram að fjölga þyrfti störfum um 60 þúsund fram til ársins 2050. Á þinginu var áhersla lögð á að nýsköpun gegni þar veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum.

Árni Sigurjónsson formaður Samtaka iðnaðarins
Árni Sigurjónsson formaður Samtaka iðnaðarins
© BIG (VB MYND/BIG)

Logi Bergmann stýrði þinginu og umræðum. Ávörp fluttu Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Sigríður Mogensen sviðstjóri hugstjórnarsviðs Samtaka iðnaðarins og Ingólfur Bender aðalhagfræðingur SI.
Sigríður Mogensen sviðstjóri hugstjórnarsviðs Samtaka iðnaðarins og Ingólfur Bender aðalhagfræðingur SI.
© BIG (VB MYND/BIG)

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI, ræddu við Loga um hvernig mæta á áskorunum um fjölgun starfa.

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI og Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV.
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI og Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV.
© BIG (VB MYND/BIG)

Í fyrri umræðum um fjármögnun í nýsköpunarumhverfinu tóku þátt Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI og Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV.

Í seinni umræðum um nýjar stoðir í útflutningsgreinum tóku þátt Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech.

Logi Bergmann fundarstjóri, Guðrún Hafsteinsdóttir fráfarandi formaður Samtaka iðnaðarins, Sesselja Ómarsdóttir framkvæmdastjóri hjá Alvotech og Árni Sigurjónsson nýr formaður SI
Logi Bergmann fundarstjóri, Guðrún Hafsteinsdóttir fráfarandi formaður Samtaka iðnaðarins, Sesselja Ómarsdóttir framkvæmdastjóri hjá Alvotech og Árni Sigurjónsson nýr formaður SI
© BIG (VB MYND/BIG)

Þá færði Árni Sigurjónsson, formaður SI, fyrrverandi formanni, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þakklætisvott en Guðrún lét af formennsku samtakanna í vor eftir 6 ára setu.

Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
© BIG (VB MYND/BIG)

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, var með samantekt í lok þingsins. Á milli dagskrárliða var vitnað til orða nokkurra forkólfa í íslenskum iðnaði.

Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA
Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA
© BIG (VB MYND/BIG)

  • Gestir komu úr ýmsum áttum á iðnþingið, þar á meðal frá Samtökum atvinnulífsins, en hér að ofan má sjá þau Ásdís Kristjánsdóttur aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri þeirra.

Gestir á iðnþingi
Gestir á iðnþingi
© BIG (VB MYND/BIG)

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Árni Sigurjónsson formaður Samtaka iðnaðarins
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Árni Sigurjónsson formaður Samtaka iðnaðarins
© BIG (VB MYND/BIG)

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Árni Sigurjónsson formaður Samtaka iðnaðarins sátu og hlustuðu á erindin.

Gestir á iðnþingi
Gestir á iðnþingi
© BIG (VB MYND/BIG)