30 fyrirtæki, 5 sveitarfélög og 9 opinberir aðilar hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA. Á árinu 2020 bættust við 58 nýir þátttakendur í hóp þeirra aðila sem taka þátt í Jafnvægisvoginni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FKA.

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í dag stafrænu ráðstefnuna Jafnrétti er ákvörðun, sem streymt var í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV. Þar kynnti Eliza Reid viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar. Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2019 hlutu 18 þátttakendur viðurkenningu, en í ár voru viðurkenningarhafar 44 talsins.

„Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til 30 fyrirtækja, 5 sveitarfélaga og 9 opinberra aðila úr hópi þeirra 116 aðila sem hafa undirritað viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið var til. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2019 hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð markmiðunum um rúmlega helming á milli ára. Auk þess vekja þátttakendur í Jafnvægisvoginni athygli á jafnréttismálum innan sinna fyrirtækja með ýmsum öðrum hætti,“ segir í tilkynningunni.

„Að setja fram lykilmælikvarða á árangri er nauðsynlegt til að tryggja aðhald og góða frammistöðu. Með mælaborði Jafnvægisvogarinnar eru allar helstu opinberar upplýsingar um stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og innan hins opinbera gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt,“ segir jafnframt í tilkynningu FKA.

Ljóst sé að sveitarfélög og opinberir aðilar sjái hag í því að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum sveitarfélaga og stofnana. Á árinu hafi alls átta sveitarfélög og tólf opinberir aðilar undirritað viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar og bættust þar með í hóp þeirra sem undirrituðu fyrir ári síðan. Þá hafi 38 fyrirtæki einnig undirritað viljayfirlýsingu um að beita sér fyrir auknu kynjajafnvægi innan sinna vébanda og vinna að markmiðum Jafnvægisvogar FKA næstu fimm árin.

„Segja má að töluverð fjölgun eigi sér stað í hópi þeirra fyrirtækja og opinberra aðila sem sjá sér hag í því að taka þátt í þessu hreyfiaflsverkefni enda eru rannsóknarniðurstöður á eina leið. Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja sem og starfsánægju og frammistöðu í starfi, stuðlar að betri ákvarðanatöku og aukinni verðmætasköpun þar sem nýsköpun og vöxtur verður frekar í hópi fólks með ólíkar skoðanir og bakgrunn. Fyrirtækin hafa þannig sýnt í verki að þau vilja virkja allan mannauðinn,“ segir í fréttatilkynningu.

Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Pipar\TBWA og Morgunblaðið.

Hér að neðan má sjá lista yfir viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar 2020, auk mynda frá stafrænu ráðstefnunni.

  • 1912 ehf.
  • Akureyrarbær
  • Arion banki
  • Atmonia
  • Borgun hf
  • Coca-Cola European Partners Íslandi
  • Controlant
  • Distica
  • Dómsmálaráðuneytið
  • Félagsbústaðir
  • Múlaþing
  • Framkvæmdasýsla ríkisins
  • GG verk ehf
  • Godo
  • Háskóli Íslands
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
  • iClean ehf
  • Inter ehf
  • Ísafjarðarbær
  • Isavia Ohf
  • Íslandsbanki
  • Ístak hf
  • Landhelgisgæsla Íslands
  • Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
  • Lyf og heilsa
  • Lyfja hf.
  • Miðbæjarhótel/Center Hotels ehf
  • Olíuverzlun Íslands ehf
  • Orka náttúrunnar
  • Orkuveita Reykjavíkur
  • Pipar\TBWA
  • Reykjanesbær
  • Ríkisútvarpið ohf
  • Rio Tinto á Íslandi
  • Samkaup
  • Sjóvá
  • Skatturinn
  • Sveitarfélagið Ölfus
  • Terra umhverfisþjónusta
  • Torg ehf
  • Valitor
  • Veritas Capital ehf
  • Vinnupallar ehf
  • VÍS Vátryggingafélag Íslands
  • Vörður tryggingar

Jafnvægisvog 2020
Jafnvægisvog 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jafnvægisvog 2020
Jafnvægisvog 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jafnvægisvog 2020
Jafnvægisvog 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jafnvægisvog 2020
Jafnvægisvog 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jafnvægisvog 2020
Jafnvægisvog 2020

Jafnvægisvog 2020
Jafnvægisvog 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)