Aðalfundur FKA Framtíðar var haldinn á dögunum og var kosin stjórn fyrir næsta starfsár. FKA Framtíð er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir konur sem vilja vaxa og ná lengra í íslensku atvinnulífi.

FKA Framtíð segist vilja vera stökkpallur fyrir ný tækifæri og framþróun og stuðningsnet fyrir konur svo þær geti fullnýtt hæfileika sína og möguleika.

Síðastliðin vetur tóku hátt í 100 konur úr atvinnulífinu þátt í Mentorverkefninu og er ný stjórn með það markmið að stækka verkefnið enn frekar.

Kosið er til tveggja ára í senn en ný stjórn FKA Framtíðar skipa:

● Árdís Ethel Hrafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandair.

● Ester Sif Harðardóttir, forstöðumaður reikningshalds og uppgjöra.

● Karlotta Halldórsdóttir, samskiptastjóri hjá HMS.

● Maríanna Finnbogadóttir, mannauðsráðgjafi í Arion Banka.

● Sigríður Inga Svarfdal Þorkelsdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá YAY ehf.

● Sjöfn Arna Karlsdóttir, verkefnastjóri reikningshalds hjá HMS.

● Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, óháður fyrirtækja- og fjármálaráðgjafi hjá Sólveig ehf. og fjármálastjóri GeoSilica.

Thelma Kristín Kvaran, fráfarandi formaður.
© Silla Páls (Silla Páls)
Sjöfn Arna Karlsdóttir, ný stjórnarkona.
© Silla Páls (Silla Páls)
Aníka Pálsdóttir, Valdís Guðbjörnsdóttir, Árdís Hrafnsdóttir, Sigríður Inga Svarfdal, Snædís Helgadóttir, Sigrún Ægisdóttir, Þórdís Alda Þórðardóttir.
© Silla Páls (Silla Páls)
Ester Sif Harðardóttir, ný stjórnarkona.
© Silla Páls (Silla Páls)
Snæfríður Dröfn Björgvinsdóttir, Alda Sigurðardóttir, Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir.
© Silla Páls (Silla Páls)
Maríanna Finnbogadóttir, ný stjórnarkona.
© Silla Páls (Silla Páls)
Ester Sif Harðardóttir, Sigríður Inga Svarfdal og Maríanna Finnbogadóttir.
© Silla Páls (Silla Páls)
Anna Björk Árnadóttir og Katrín Kristjana Hjartardóttir.
© Silla Páls (Silla Páls)
Sigríður Inga Svarfdal.
© Silla Páls (Silla Páls)
Anna Björk Árnadóttir fráfarandi úr stjórn og Thelma Kristín Kvaran fráfarandi úr stjórn.
© Silla Páls (Silla Páls)
Kjörstjórn Aðalfundar FKA Framtíðar skipaði: Ósk Heiðu Sveinsdóttur, Katrínu Kristjönu Hjartadóttur, Önnu Björk Árnadóttur.
© Silla Páls (Silla Páls)
Vínkonur: Ragnhildur Helgadóttir og Charlotta Rós.
© Silla Páls (Silla Páls)