Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð, Stjórnvísi og Viðskiptaráð veittu í gær verðlaun fyrir Samfélagsskýrslu ársins. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt og hlaut Isavia viðurkenninguna í ár.
Markmiðið með viðurkenningunni fyrir Samfélagsskýrslu ársins er að hvetja fyrirtæki til að setja sér mælanleg markmið og birta reglulega opinberlega, með vönduðum hætti, upplýsingar um hvernig samfélagsábyrgð og sjálfbærni í rekstri fyrirtækja skilar þeim og samfélaginu auknum ávinningi. Í ár hlaut Isavia verðlaunin.
Alls bárust 29 tilnefningar um 16 fyrirtæki. Í dómnefnd voru Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður Viðskiptaráðs Íslands, Kjartan Sigurðsson við Háskólann í Reykjavík og Jóhanna Harpa Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun, sem var jafnframt formaður dómnefndar. Í mati dómnefndar kemur fram að skýrslan er unnin í samráði við hagaðila og fjölda starfsfólks Isavia , frá öllum sviðum fyrirtækisins. Einnig var fenginn utanaðkomandi ráðgjafi til að yfirfara og tryggja gæði upplýsinganna. Samfélagsskýrslan fylgir alþjóðlegum stöðlum GRI standards, hún er skrifuð í samræmi við árangur fyrirtækisins í að ná settum, mælanlegum markmiðum fyrir árið 2018 sem eru ennfremur
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar hélt erindi.
Agla Eir Viljálmsdóttir frá Viðskiptaráði
Eirikur Hjálmarsson frá Orkuveitu Reykjavíkur
Ásdís Gíslason, markaðsstjóri HS Orku.
Haraldur Guðni Eiðsson frá Arion banka.
Theodóra S. Þorsteinsdóttir.