Wow air var lýst gjaldþrota í síðustu viku eftir ríflega sjö ára rekstur. Fyrirtækið og Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri þess, voru alla tíð áberandi í íslensku samfélagi.

Jóna Lovísa Jónsdóttir, prestur og fitnessmeistari opnaði vef WOW Air, ásamt Skúla Mogensen þann 23.11.11.
Jóna Lovísa Jónsdóttir, prestur og fitnessmeistari opnaði vef WOW Air, ásamt Skúla Mogensen þann 23.11.11.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jóna Lovísa Jónsdóttir, prestur og fitnessmeistari, opnaði bókunarvef WOW Air, ásamt Skúla Mogensen 23. nóvember 2011.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Dorrit Moussaieff, þáverandi forsetafrú, nefndi fyrstu flugvélina sem Wow air festi kaup á, Airbus A321, Freyju, á Reykjavíkurflugvelli í mars 2015

Skúli Mogensen valinn markaðsmaður ársins 2017.
Skúli Mogensen valinn markaðsmaður ársins 2017.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti Skúla Mogensen verðlaunin markaðsmaður ársins hjá ÍMARK, samtökum markaðsfólks á Íslandi, á Kjarvalsstöðum í desember 2017.

Skúli Mogensen í hjólreiðakeppninni Wow Cyclothon sumarið 2013. Keppnin hefur frá upphafi verið tengd nafni Wow air, en mun vera haldinn á ný í ár undir nýju nafni .

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Alla tíð var lagt mikið upp úr klæðnaði starfsmanna Wow air. Gunni Hilmarsson hannaði  flugfreyjubúninga félagsins. Fjólublái liturinn var áberandi og þótti skera sig úr klæðnaði starfsmanna annarra flugfélaga.

Jómfrúarferð WOW air
Jómfrúarferð WOW air
© Sigurjón Ragnar (SR)

Skúli Mogensen þjónaði farþegum í jómfrúarferð Wow air sumarið 2012.

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air og Hr. T. Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á Íslandi ásamt áhöfn fyrsta flugs WOW air til Nýju Delí.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air og Hr. T. Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á Íslandi ásamt áhöfn fyrsta flugs WOW air til Nýju Delí.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Fyrsta áætlunarflugið frá Íslandi til Indlands tók á loft 6. desember 2018. Indlandsflug Wow air varð skammlíft því viku síðar var tilkynnt að síðasta flugferðin yrði þann 20. janúar 2019.