Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands stóð á dögunum fyrir opnum fundi um stöðu kynjanna í stjórnunarstöðum í íslensku atvinnulífi. Þar var svarað spurningum líkt og: Hvað þarf til að jafna stöðuna? Eru engin smitáhrif af lögum sem sett voru á stjórnir fyrirtækja sem eiga að tryggja jafnan hlut karla og kvenna? Er raunhæft að setja kynjakvóta á framkvæmdastjórnir?

Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi,
Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Fundargestir urðu ekki einungis fróðleiksfúsari af veru sinni á fundinum, heldur skemmtu þeir sér sömuleiðis konunglega.

Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi, Eliza Reid, Jóhann Sigurðurardóttir
Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi, Eliza Reid, Jóhann Sigurðurardóttir
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og Eliza Reid forsetafrú lögðu kirfilega við hlustir.

Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi,  Ásta Dís Óladóttir, lektor við Viðskiptafræðideild
Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi, Ásta Dís Óladóttir, lektor við Viðskiptafræðideild
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Ásta Dís Óladóttir, lektor við Viðskiptafræðideild, kynnti niðurstöður rannsóknar sem ber heitið: Er skortur á framboði eða er engin eftirspurn eftir konum í æðstu stjórnunarstöður?

Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi,
Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi,
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, sátu fyrir svörum í panelumræðu.

Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi,  Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA
Misvægi kynja í stjórnunarstöðum á Íslandi, Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, stýrði fundinum af sinni alkunnu snilld.