Icelandic Startups í samstarfi við Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Háskóla Íslands héldu stærstu vísindaferð hér á landi frá upphafi í Grósku síðasta föstudag og mættu þar yfir 500 háskólanemar til að kynna sér Gulleggið - stærstu frumkvöðlakeppni landsins, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að Gulleggið eigi sér langa sögu og verði haldið í 15. skipti í byrjun næsta árs. Gulleggið sé keppni á hugmyndastigi, það er eina sem þurfi til að taka þátt sé hugmynd, en í raun þurfi ekki einu sinni hugmynd því hægt sé að skrá sig til þáttöku án hugmyndar og fái þeir einstaklingar sem það gera að finna sér teymi inni í keppninni.

„Stuðningsaðilar Gulleggsins eru fjölmargir og voru Marel, Huawei, KPMG og fleiri fyrirtæki á svæðinu með bása að spjalla við fólk og CCP bauð gestum í heimsókn upp í höfuðstöðvar sínar sem eru einmitt á 3. hæð í Grósku. Nýsköpunarnefndin stóð svo fyrir happdrætti og dreifði út fjölda vinninga.

Ölgerðin er stuðningsaðili Gulleggsins og var Malla sem er sérfræðingur í sjálfbærni hjá Ölgerðinni með áhugavert erindi og sá Ölgerðin svo um að halda börunum opnum,“ segir í fréttatilkynningunni.

Undir lokin steig tónlistarkonan Þórunn Antonía á svið og skemmti gestum vísindaferðarinnar. Myndir úr vísindaferðinni má sjá hér að neðan.

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vísindaferð Icelandic Startups
Vísindaferð Icelandic Startups
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Mjólkursamsalan og Ísey útflutningur styðja við Til sjávar og sveita

Nóg hefur verið um að vera hjá Icelandic Startups undanfarið en á dögunum var gengið frá samningum þess efnis að Mjólkursamsalan og Ísey útflutningur komi inn sem bakhjarlar viðskiptahraðalsins Til sjávar og sveita sem fer af stað þann 15. nóvember og bætast þar við Samkaup sem styðja við verkefnið annað árið í röð.

Icelandic Startups hafa keyrt hraðalinn seinustu tvö ár í góðu samstarfi við Sjávarklasann, Landbúnaðarklasann og Matís og hafa á þeim tíma 19 sprotafyrirtæki farið í gegn.

Kristín Soffía, framkvæmdastjóri Icelandic Startups um samstarfið:

„Við erum gríðarlega spennt yfir því að fá Ísey og MS inn í verkefnið. Þau koma ekki bara inn með fjármagn heldur koma þau inn með öflugt fólk og mikla reynslu. Þeirra þátttaka mun styrkja verkefnið enn frekar.“

Í ár verður lögð áhersla á fyrirtæki sem eru tilbúin með vöru eða langt komin í vöruþróun og hyggjast sækja á markað eða auka markaðssókn innanlands- sem og utan. Hraðallinn verður keyrður í fjórar vikur og hefst hann 15. nóvember og lýkur með uppskerudegi 10. desember.

Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita:

„Það er löngu tímabært að keyra svona markaðshraðal hér á landi því markaðssetning virðist vera veikleiki í uppbyggingu á íslenskum sprotafyrirtækjum. Það verður ómetanlegt að fá að draga að borðinu helstu sérfræðinga landsins til að gefa af sér og leiðbeina þessum fyrirtækjum.“

Fjögurra vikna markaðshraðall er viðurkennd aðferð til að hraða fyrirtækjum í gegnum það flókna ferli að sækja á markað og er hraðalinn byggður upp í samstarfi við GAN - Global Accelerator Network.

Ari Edwald, forstjóri Ísey:

„MS og Ísey er mikið kappsmál að styðja við frumkvöðlastarfsemi og sprotafyrirtæki og það hefur verið markmið MS með aðild að Landbúnaðarklasanum á undanförnum árum. Það eru mikil tækifæri til að skapa meiri verðmæti í matvælaiðnaði og víðar úr innlendum hráefnum og nýjum lausnum varðandi tækni og umhverfismál. Viðskiptahraðallinn „Til sjávar og sveita" hefur sýnt að hann er gagnlegur til að laða fram hugmyndir og hjálpa frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum að ná árangri.“