Á dögunum var ÍMARK dagurinn haldinn hátíðlegur á Hilton Reykjavík Nordica, en þá kemur fagfólk saman og hlýðir á erlenda sem innlenda fyrirlesara sem miðla ýmsum fróðleik tengdum markaðs- og kynningarmálum.

Kynntar voru niðurstöður úr markaðskönnun og vali á auglýsingastofu og vörumerki ársins en Icelandair hlaut titilinn í ár og Hvíta húsið var valið auglýsingastofa ársins. Verðlaunin ÁRAN, árangursríkasta auglýsingaherferðin 2019, var einnig veitt á ráðstefnunni en það var Arion banki sem hlaut verðlaunin í þetta sinn fyrir herferðina Stafræn bankaþjónusta sem var unnin af Hvíta húsinu. Rúsínan í pylsuendanum á ÍMARK deginum er alltaf Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, þar sem auglýsingastofur keppast um að hreppa verðlaun fyrir bestu auglýsingarnar á hinum ýmsu sviðum.

Þetta var í 34. sinn sem Lúðurinn var veittur en alls voru þeir fjórtán talsins í ár. Auglýsingastofan Brandenburg bar sigur úr býtum með fjölda lúðra þriðja árið í röð en þau hlutu sex lúðra en voru með 19 tilnefningar. Orkan var það fyrirtæki sem fékk flesta lúðra, en Brandenburg er einmitt auglýsingastofan þeirra, fyrir herferðina Passaðu þig hjá Orkunni, Passaðu þig á jólaösinni og  NamasTE - Jafnaðu þig á próflestrinum. Hvíta húsið hlaut þrjá lúðra, ENNEMM og Kontor Reykjavík tvo hver og Pipar/ TBWA hlaut einn lúður.

ÍMARK dagurinn 2020
ÍMARK dagurinn 2020

Mælt hefur verið gegn því að fólk takist í hendur vegna COVID-19 veirunnar. Því þurfti fólk að leita nýrra leiða þegar kom að því að afhenda lúðra og veita þeim viðtöku.

ÍMARK dagurinn 2020
ÍMARK dagurinn 2020

Berglind Arnardóttir, vörumerkjasérfræðingur hjá Icelandair, tók við viðurkenningunni vörumerki ársins úr höndum Ólafs Þórs Gylfasonar, framkvæmdastjóra MMR.

ÍMARK dagurinn 2020
ÍMARK dagurinn 2020

Vörumerkjasérfræðingurinn Mark Ritson var einn af nokkrum erlendum fyrirlesurum sem héldu erindi á ÍMARK deginum.

ÍMARK dagurinn 2020
ÍMARK dagurinn 2020

Glatt var á hjalla á ÍMARK deginum og svo sannarlega tilefni til að skála.

ÍMARK dagurinn 2020
ÍMARK dagurinn 2020

Sigríður Theódóra Pétursdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Brandenburg, tekur við einum af sex lúðrum sem auglýsingastofan hreppti.