Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra veitti fjórar viðurkenningar Íslenska sjávarklasans til fólks eða fyrirtækja sem eflt hafa nýsköpunarstarf og samvinnu í tengslum við Sjávarklasann.

Þau sem hlutu viðurkenningarnar eiga það sameiginlegt að hafa stuðlað að öflugra samstarfi fólks innan sjávarklasans á Íslandi og stuðlað að aukinni verðmætasköpun í frumkvöðlasamfélaginu, að því er kemur fram í tilkynningu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gulleggið
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gulleggið
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Viðurkenningar hlutu:

Björgólfur Hávarðsson er verkefnastjóri hjá Seafood Innovation Cluster í Noregi. Hann hefur um árabil verið ötull áhugamaður um aukin tengsl á milli frumkvöðla í Noregi og Íslandi og liðsinnt ófáum nýsköpunarfyrirtækjum í Sjávarklasanum að efla sín tengsl í Noregi.

Eydís Mary Jónsdóttir umhverfis- og auðlindafræðingur og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Zeto fær viðurkenningu Sjávarklasans fyrir ötult starf við að efla áhuga og samstarf í tengslum við nýtingu hérlendis. Hún er jafnframt einn höfunda bókarinnar Íslenskir matþörungar.

Hrund Gunnsteinsdóttir er framkvæmdastjóri Festu. Hún hefur verið óþreytandi við að efla umræðu og koma af stað margháttuðu samstarfi fólks og fyrirtækja um sjálfbærni á Íslandi. Fyrirtæki innan Sjávarklasans hafa notið þessarar forystu Hrundar með ýmsum hætti.

Sæplast hlaut viðurkenningu fyrir að hafa liðsinnt mörgum nemendum og minni fyrirtækjum, sem hafa sýnt áhuga á að endurnýta plast og framleiða ýmsa nytjahluti. Áhugi fyrirtækja innan Sjávarklasans eins og Sæplasts fyrir því að auka veg endurvinnslu og liðsinna frumkvöðlum er grundvöllur velgengni margra sprota í Sjávarklasanum.

Á myndinni hér að neðan eru frá vinstri Þór Sigfússon, Eydís Mary Jónsdóttir, Svavar Hávarðsson (sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Björgólfs), Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Arnar Snorrason frá Sæplasti og Sif Gunnsteinsdóttir (sem tók við fyrir hönd Hrundar).

Sæplast, Þór Sigfússon, Eydís Mary Jónsdóttir, Svavar Hávarðsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Arnar Snorrason, Sif Gunnsteinsdóttir
Sæplast, Þór Sigfússon, Eydís Mary Jónsdóttir, Svavar Hávarðsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Arnar Snorrason, Sif Gunnsteinsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Á myndinni hér að neðan er teymi LearnCove ásamt Áslaugu Örnu. Frá vinstri eru það Gunnar Jónsson markaðs- og sölustjóri, Aðalheiður Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, Áslaug Arna ráðherra, Sölvi Már Benediktsson hugbúnaðarsérfræðingur og Sveinbjörn Ásgeirsson verkefnastjóri.

LearnCove, Gunnar Jónsson, Aðalheiður Hreinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sölvi Már Benediktsson, Sveinbjörn Ásgeirsson
LearnCove, Gunnar Jónsson, Aðalheiður Hreinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sölvi Már Benediktsson, Sveinbjörn Ásgeirsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Á myndinni hér að neðan má sjá ráðgjafa MAR Advisor með Áslaugu Örnu. Frá vinstri eru þau Baldur Hrafn Vilmundarson greinandi, Jón Garðar Guðmundsson meðeigandi, Magnús Bjarnason framkvæmdastjóri og Áslaug Arna ráðherra.

MAR Advisors, Baldur Hrafn Vilmundarson, Jón Garðar Guðmundsson, Magnús Bjarnason, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
MAR Advisors, Baldur Hrafn Vilmundarson, Jón Garðar Guðmundsson, Magnús Bjarnason, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Á myndinni hér að neðan eru þau Nanna Ósk Jónsdóttir, rekstrarstjóri Hús Sjávarklasans og Granda Mathöll, Áslaug Arna ráðherra og Magnús Þorkelsson stofnandi Deed Delivery.

Deed Delivery, Nanna Ósk Jónsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Magnús Þorkelsson
Deed Delivery, Nanna Ósk Jónsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Magnús Þorkelsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Collab var á boðstólnum fyrir gesti og gangandi í Sjávarklasanum 17. febrúar síðastliðinn.

Collab, sjávarklasinn
Collab, sjávarklasinn
© Aðsend mynd (AÐSEND)