Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi tíu einstaklinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Þeir sem fengu orðuna eru eftirfarandi í stafrófsröð:

  • Eggert Pétursson myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar
  • Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstjóri, Djúpuvík, riddarakross fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í dreifðum byggðum
  • Helga Birna Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu fatlaðs fólks, menntunar og félagsmála þroskaþjálfa
  • Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði og rannsóknir á sviði forvarna
  • Ingibjörg Einarsdóttir skrifstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til eflingar á lestrarhæfni grunnskólanema
  • Kristín Guðmundsdóttir íþróttakennari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til þjálfunar fatlaðra íþróttamanna
  • Kristján Eyjólfsson læknir, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði hjartalækninga og framlag til heilbrigðisvísinda
  • Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar
  • Sveinn Elías Jónsson bóndi og byggingameistari, Kálfsskinni, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs og félagsmála í heimabyggð
  • Þórir Baldursson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar