Í tilefni af Menningarnótt í Reykjavík laugardaginn 18. ágúst verður Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns opið frá kl. 14:00 til 17:00. Boðið verður upp á leiðsögn um safnið og léttar veitingar segir í frétt á heimasíðu Seðlabankans.

Aðgangur að safninu er um aðaldyr bankans frá Arnarhóli.