N1 og KSÍ hafa endurnýjað samstarf sitt til næstu tveggja ára en samningur þess efnis var undirritaður á Laugardalsvelli á dögunum.

Fyrsti samstarfssamningurinn þeirra á milli var undirritaður árið 2014 og felur samningurinn í sér að N1 verði áfram einn helsti bakhjarl KSÍ í bæði kvenna- og karlaknattspyrnu, auk þess að styðja við unga knattspyrnuiðkendur um allt land.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ:

„N1 hefur til fjölda ára verið helsti stuðningsaðili KSÍ og því ríkir mikil ánægja með endurnýjun samstarfsins. Stuðningur félagsins hefur haft virkilega jákvæð og kraftmikil áhrif á íslenska knattspyrnu, bæði framgang karla- og kvennalandsliða á alþjóðlegum vettvangi og uppbyggingarstarf innan ungliðastarfs KSÍ. Það eru spennandi tímar fram undan í íslenskri knattspyrnu og hlökkum við til að styðja enn betur við íþróttina með dyggri aðstoð frá N1.“

Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1:

„Það er afar ánægjulegt að fá tækifæri til að styðja við vegferð karla- og kvennalandsliðs okkar í knattspyrnu sem og uppgang ungra leikmanna, enda hefur N1 lagt sérstaka áherslu á að stuðla að vexti grasrótarinnar í íslenskri knattspyrnu. Stelpurnar okkar halda brátt á EM 2022 í fótbolta og er einnig sérstaklega gaman að fá að vera hluti af því ævintýri. Við hjá N1 óskum þessum flotta landsliðshópi góðs gengis á Englandi.“

Sérstaða samstarfsins felst einnig í stuðningi N1 við Hæfileikamótun KSÍ sem er liður í uppbyggingu knattspyrnu á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Verkefninu er ætlað að auka áhuga á knattspyrnuiðkun meðal yngri iðkenda af öllum kynjum með það að markmiði að knattspyrnulið um allt land fái heimsóknir frá þjálfurum KSÍ. Þar fá þeir tækifæri til að fylgjast með efnilegum leikmönnum á aldrinum 13 til 14 ára, auk þess sem leikmennirnir fá leiðsögn frá þjálfurum í fremstu röð.