N1 greiddi í vikunni 1.161 milljónir króna inná skuldabréf með auðkennið N1 08 1.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem skuldabréfið er skráð en upphafleg fjárhæð skuldabréfsins var 2 milljarðar króna.

Fyrr á árinu hafði N1 greitt hálfan milljarð króna inná skuldabréfið. Þá kemur loks fram í tilkynningunni að eftirstöðvar skuldabréfsins verða greiddar á gjalddaga þann 11. janúar næstkomandi.