N1 tilkynnti um lækkun hlutafjár sem nemur 25,5% þann 15. desember sl. Svokallaður X-dagur vegna lækkunarinnar er í dag og hefur gengi bréfa í olíufyrirtækinu hækkað um 22,76% það sem af er degi. Lækkunardagurinn sjálfur er 21. desember næstkomandi og greiðsludagur 28. desember.

Einungis tveggja milljón króna viðskipti eru að baki hækkuninum í dag, en eins og áður sagði er hækkunin vegna lækkunar hlutafjár félagsins.