Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,59% í viðskiptum dagsins og stendur hún nú í 1744,30 stigum eftir rúmlega 2,2 milljarða viðskipti.

Gengi bréfa N1 lækkaði um 5,81% í 245 milljóna viðskiptum og Skeljungs um 4,38% í 78 milljóna viðskiptum.

Gengi bréfa Eikar fasteignafélags hækkaði um 5,26% í 268 milljóna króna viðskiptum og Regins um 3,9% í 295 milljóna viðskiptum.

Mest velta var í viðskiptum með bréf Símans sem hækkuðu um 3,42% í 409 milljóna króna viðskiptum.