Rúmlega 8,3 milljarða króna velta var af viðskiptum á Kauphöllinni í dag en heildarvelta af viðskiptum með hlutabréf á aðalmarkaði námu rúmum tveimur milljörðum króna og var velta með viðskipti á skuldabréfamarkaði um 6,3 milljarðar.

Mest hækkaði gengi hlutabréfa í HB Granda og N1. Hækkuðu bréf HB Granda um 4,68% og bréf í N1 um 4,69% í dag. Mesta lækkun var á bréfum Nýherja eða um 1,74%.

Í lok dags stóð gildi úrvalsvísitölunnar í 1.282,02 og jókst það um 0,85%.