Neytendastofa hefur sektað olíufélagið N1 um hálfa milljón króna fyrir markaðssetningu félagsins á svokölluðum N1 lykli.
Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en stofnuninni hafði borist kvörtun frá Skeljungi um að N1 hefði brotið gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu frá árinu 2009. Í kvörtuninni kom fram að N1 hafi hringt í neytendur og boðið þeim N1 lykil með þeim ávinningi að fá 5 kr. afslátt af eldsneytisverði í formi 3 króna afsláttar og söfnun tveggja N1 punkta.
Sem fyrr segir brýtur þetta gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu sem árið 2009 bannaði N1 að auglýsa afslátt af eldsneytisverði sem samtölu af afslætti í krónum og söfnun punkta.
„Neytendastofa taldi ekki skipta máli þó einungis hafi verið um að ræða kynningu í síma og neytendum hafi verið greint frá því í hverju 5 kr. afslátturinn fælist. Óheimilt sé að jafna söfnun punkta við afslátt í krónum,“ segir á vef Neytendastofu.